Monday, February 19, 2007
over and out

...

Posted at 6:19 pm by Nornin
Já, þú meinar það!(2)  




Tuesday, January 25, 2005
Systir mín

Besta systir mín á afmæli í dag!  Ég á ekki nægilega stór orð til að lýsa því hvað hún er frábær og hvað hún er mikilvæg í lífi mínu.  Hún hefur óbilandi þolinmæði, umburðarlyndi og hlýju.  Elsku Ágústa, þú ert besta systir mín, til hamingju með daginn!

Posted at 8:35 am by Nornin
Já, þú meinar það!(3)  




Tuesday, December 21, 2004
-ismar

sexismi
buddhismi
sosíalismi
fasismi
nasismi
kommúnismi
marxismi
femínismi
     eða eins og Ferris Bueller komst svo vel að orði ... "-ism's in my opinion are not good. A person should not believe in an -ism, he should believe in himself."  Mörg fleyg orð féllu í þeirri ágætu mynd ... annað dæmi "Pardon my French, but Cameron is so tight that if you stuck a lump of coal up his ass, in two weeks you'd have a diamond."

Ég held reyndar að Matthew Broderick lifi enn á fornri frægð þessarar myndar og svo jú því að vera herra SJP.  Og það er gaman að því að hún leikur í B í B sem ja, ætli það megi segja að sá þáttur falli undir femínisma?  Ekki veit ég það en ég veit að persóna Kim Catrall í þáttunum, Samantha Jones, hefur verið orðuð við nýjan –isma eða svona því sem næst, kannski eru –ismar ekki til í umræðunni um kynhneigð eða kynhegðun ... en kontrasexual ... æ, þú veist hvað ég er að tala um, þetta hefur verið á síðum allra slúðurblaðanna ... mótspil kvenna við trendinu sem Beckham kom af stað, metrósexúalinu sko.
 

Ég hef verið að velta þessum kynhneigðum/hegðun fyrir mér undanfarið og ég held að það sé öruggt að segja að ég sé hedrósexual.  Æ, ertu búin að gleyma hvað það er?  Bara venjuleg stelpa sem verður skotin í venjulegum strák og er bara frekar íhaldssöm þegar kemur að svona – stíga í vænginn, stefnumót – og þessháttar málum.  Ég er þiggjandinn, vil láta bjóða mér út, bjóða mér drykk, opna fyrir mig hurðina en ekki gerandinn ... kannski svolítið old fashioned, bjartsýni og og vonlaus rómantiker en  samt ...

Posted at 6:03 pm by Nornin
Já, þú meinar það!(3)  




Tuesday, September 14, 2004
Mi dispiace, devo andare ...

Ég trúlofaðist í júní eða júlí 1995.  Ég var ástfangin upp fyrir haus en á leið til Ítalíu.  Með uppsetningu hringa vildum við segja að þrátt fyrir þennan tímabundna aðskilnað ætluðum við alltaf að vera saman.  Ég batt enda á allt saman í mars ári seinna.  Ég var rétt 19 ára, í útlöndum, hafði eignast helling af ótrúlega skemmtilegum vinum og mér fannst það að eiga kærasta heima á Íslandi bara hefta mig.  En Denis var ástæðan ... svona eftirá að hyggja.

Við Denis vorum dásamleg saman.  Þá meina ég við vorum svo skemmtileg saman.   Ánægð með lífið og tilveruna, frjáls og óháð ... og algjörir bullurassar, ég veit ekki hvort okkar var verra.  En við vorum líka skotin hvort í öðru ... svo fór ég heim í maí.  Ég skildi við hann á flugvellinum.  Skildi eftir í brjóstvasanum á skyrtunni hans mynd af mér og miða sem á stóð „þetta er handa þér en það er ekki auðvelt að segja það sem ég get ekki sagt en þú munt ávalt eiga stað í hjarta mínu”. (kommon ég var 19 og vonlaus rómantíker).  Ég grét alla leið til Lundúna.

Ári seinna fór ég út í heimsókn og í fyrstu var allt eins og það átti að vera, svo líkt og þruma úr heiðskýru lofti hætti Nene að tala við mig, hann snéri uppá sig og var einfaldlega leiðinlegur við mig.  Ég auðvitað skildi ekki neitt í neinu, varð bara sár og fór heim í hálfgerðri ástarsorg.  Ég hef enn ekki fengið skýringu ...

Ég fór sem Erasmus-nemi til Bologna 1999.  Áður en ég fór til Bologna tók ég stutt stopp í Conegliano.  Mistök.  Ég hitti Denis, sem var svo ljúfsárt.  Hann var komin með nýja.  Þau keyrðu mig á lestarstöðina, við fengum okkur kaffi og ég beit á jaxlinn.  Náði tæplega að halda andlitinu þar til lestin var lögð af stað.  Tárin flæddu.

Ég fór til Rómar í sumar.  Skellti mér til Pieve að heimsækja Federicu en hitti Denis í leiðinni (dýralæknirinn kom um daginn að kíkja á einhverja belju (...) og kíkti á Gerði í leiðinni).  It was nice, surreal but nice.  Hittumst í klukkutíma.  Hann var enn með myndina og miðann í veskinu sínu.  Þegar við kvöddumst leit hann í augu mín og sagði „láttu heyra í þér”.  Hann settist uppí BMW-inn sinn og keyrði í burtu.  Ég settist inn í bíl hjá Federicu og byrjaði að brynna músum.

Við hittumst ekki meira. Töluðumst við í síma tvisvar sinnum og skiptumst á nokkrum sms-um.  Ég sagði við hann „Denis, í hvert sinn sem ég sé þig enda ég í tárum.”  Hann svaraði því til að hann vissi það og ekki orð meir.  Ég hafði ætlað til Pieve aftur til að hitta hann þar til á þessum tímapunkti.  Ég fór ekki.

Fyrir þremur vikum fékk ég skilaboð frá honum.  „Veistu ljósið mitt ... það var virkileg synd að við skyldum ekki hafa hist ... kannski er það betra svona ... þrátt fyrir að undir niðri er ég ekki alveg sannfærður ...”  (sai stellina, é stato un proprio peccato non esserci visti ... ma forse é meglio cosí ... anche se sotto sotto non é ne sia proprio sicuro ...)

Við eigum stefnumót á MSN á morgun klukkan eitt ...


Posted at 5:31 pm by Nornin
Já, þú meinar það!(3)  




Monday, August 16, 2004
...

Fyrsta mál á dagskrá er að óska mínum kæra vini Andrési Inga innilega til hamingju með afmælið!  Á afmælisdaginn, sem og aðra daga, dvelur hann í Berlín og unir hag sínum vel.  Andrés, megir þú lifa í lukku og njóta lífsins lystisemda í dag og alla daga, allt til enda veraldarinnar!

Næsta mál á dagskrá er tilkynning þess efnis að Pétur er kominn heim.  Hann brá sér bara af bæ í nokkra daga ... það var jú svo dásamlegt veðrið að hann var ekkert að hafa fyrir því að koma heim blessaður, var bara úti að elta flugurnar.  En þegar fór að kólna aftur kom hann heim blautur og vælandi.  Allt er gott sem endar vel og anda ég nú rólega vitandi af honum á hlýjum og öruggum stað.

Lifið heil.

Posted at 2:22 pm by Nornin
Já, þú meinar það!(3)  




Friday, June 11, 2004
Stalkers day off

I've been hanging around
Just in case you fall in love with me
I know you have doubts
I hear when you shout
Cos I understand you see

I was concerned when you said
You'd rather wake up dead
Than spend a day with me
I know that's not you
I know and it's true
They don't understand you like I do

I've been hanging around
Just in case you fall in love with me
I know you have doubts
I hear when you shout
Cos I understand you see

[Spoken:]
Hi, it's me again...Yay, I got on parole!
Yeah, umm..If you could just..er..pick up the phone,
I'd like to talk to you, please!

I've seen misery
And have a strange empathy
With the woman who kidnaps her lover
This love ain't a dream
I know it's obscene
The calls that I left for your mother

I've been hanging around
Just in case you fall in love with me
I know you have doubts
I hear when you shout
Cos I understand you see

[Spoken:]
I love you, too...everyday...perhaps someday we could meet...
face to face this time...[*laughs...]
I'm sorry about that letter I sent you...
the newspaper cuttings and stuff...and blood... [*laughs*]

I've been hanging around
Just in case you fall in love with me
I know you have doubts
I hear you when you shout
Cos I understand you see

Just tell me that you love me...

Robbie Willliams


Posted at 1:45 pm by Nornin
Já, þú meinar það!(1)  




Sunday, May 09, 2004
Einræður Starkaðar

Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt,
aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndist strengur í brjósti,sem brast
við biturt andsvar, gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka.
 
                                         Einar Benediktsson


Posted at 2:29 pm by Nornin
Já, þú meinar það!(3)  







If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed